Rennsli í Jökulsá í Fljótsdal

Línuritið sýnir sumarrennsli Jökulsár í Fljótsdal á tveimur stöðum. Einnig sýnir það áætlað meðalrennsli ásamt hámarks- og lágmarksrennsli frá 1950 til 2004.

  • Fjólubláa línan sýnir rennsli um yfirfall og botnrás Ufsarlón rétt ofan við Hrakstrandarfoss sem er efsti fossinn í röð fossa í Fljótsdal.
  • Rauða línan sýnir rennsli árinnar við Hól. Rennslismælirinn er ofan við Fljótsdalsstöð áður en Jökulsá í Fljótsdal sameinast útfalli aflstöðvarinnar.
  • Bláa línan sýnir áætlað meðalrennsli við Hrakstrandarfoss á árunum 1950 til 2004.
  • Blái flöturinn í bakgrunni sýnir áætlað hámarks- og lágmarksrennsli við Hrakstrandarfoss á árunum 1950 til 2004.

Í dag má helst búast við rennsli við Hrakstrandarfoss seinni hluta sumars þegar fylling Hálslóns hefur verið tryggð. Þó er ekki útilokað að vatn renni framhjá fyrri part sumars þegar leysingar eru mjög miklar.